Velkomin í Síðuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Fréttir

Forvarnardagur

Hópvinna
Hópvinna
Forvarnardagurinn er í dag 6. nóvember. Síðustu ár hafa 9. bekkingar unnið verkefni tengd forvörnum á þeim degi. Verkefni þetta tók um það bil tvær kennslustundir. Vinnan hófst á því að nemendur komu saman frammi í sal og horfðu þar á ávarp forseta Íslands auk þess sem fulltrúi frá Íþróttafélaginu Þór ræddi við hópinn. Eftir ávarpið var unnið í hópum þar sem nemendur ræddu mál sem tengjast málefninu. Þar var um að ræða  íþrótta- og æskulýðsstarfs, samveru fjölskyldunnar og að hvert ár skiptir máli. Hóparnir unnu veggspjöld og kynntu niðurstöður. Hér má sjá myndir.


Mynd augnabliksins

100_6542.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 1199

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn