
Hópvinna
Forvarnardagurinn er í dag 6. nóvember. Síðustu ár hafa 9. bekkingar unnið verkefni tengd forvörnum á þeim degi. Verkefni þetta tók
um það bil tvær kennslustundir. Vinnan hófst á því að nemendur komu saman frammi í sal og horfðu þar á ávarp forseta
Íslands auk þess sem fulltrúi frá Íþróttafélaginu Þór ræddi við hópinn. Eftir ávarpið var unnið
í hópum þar sem nemendur ræddu mál sem tengjast málefninu. Þar var um að ræða íþrótta- og
æskulýðsstarfs, samveru fjölskyldunnar og að hvert ár skiptir máli. Hóparnir unnu veggspjöld og kynntu niðurstöður.
Hér má sjá myndir.