Nemendur fengu glaðning!
Almennt - föstudagur 30.janúar 2009 - Lestrar 73
Í dag var minna um bóknám í 9. bekk, byrjað var á að horfa á bíómynd en það völdu nemendur sem umbun fyrir vel unnin störf í janúar. Þá tók við heldur en ekki skemmtun. Í gær fengum við nefnilega sendingu frá föður Guðrúnar Dagnýjar sem sækir sjóinn frá Grímsey. Um var að ræða fullan kassa af sjávarkvikindum. Kenndi ýmissa grasa má þar nefna krabba, þorsk, ýsu, rauðmaga og grásleppu, hlýra, blágómu og löngu. Nemendur skoðuðu skepnurnar og fengu svo að krukka í þær eftir að Dagný hafði sýnt þeim hvernig flaka á fisk. Eftirminnilegur dagur og myndirnar tala sínu máli þótt þær sýni ekki lyktina :)










