Velkomin í Síðuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Fréttir

Umhverfisdagur

Súlur
Súlur

Mánudaginn 8. september var umhverfisdagur í Síðuskóla.  Á þeim degi er áhersla lögð á að vinna með nánasta umhverfi skólans og þar sem miklum tíma af ævinni er eytt inni leggjum við einnig áherslu á að vera úti, enda ekki minna nám sem fer fram í náttúrunni.

9. bekkur fór að þessu sinni Lögmannshlíðarhringinn.  Gengið var eftir gömlum árfarvegi sem talið er að Glerá hafi myndað þegar hún rann undir ís fyrir rúmum 10000 árum.  Við skoðuðum þar hundaþúfur sem margir halda að verði til þegar hundar gera stykkin sín á víðavangi.  Nú vita nemendur betur!  Síðan var gengið sem leið lá upp í Lögmannshlíðarkirkju þar sem Pétur Björgvin, djákni í Glerárkirkju, tók á móti okkur og fræddi um sögu staðarins.  Hann bauð okkur inn í kirkjuna og sýndi okkur gamla gripi, þ.á.m. yfir 400 ára gamla altarisbrík og rúmlega 200 ára gamlan predikunarstól.  Nesti var snætt við kirkjuna og garðurinn skoðaður.  Hafði Pétur orð á því að sjaldan hafi hann hitt jafn prúðan hóp. Gulli fræddi okkur þar um helstu örnefni fjallahringsins með sérstakri áherslu á Hlíðarfjall.  Nú vita nemendur að stóra skálin norðan við skíðasvæðið er ýmist kölluð Hrappsstaðaskál eða Hrafnsstaðaskál. Síðan var gengið norður Lögmannshlíð, gróður skoðaður og stansað við skógræktarreit Síðuskóla.  Neðst í hlíðinni var farið í leiki og því næst haldið heim í skólann.  Þar tóku nemendur þátt í keppni um titilinn Náttúrufræðingur Síðuskóla.  Er skemmst frá því að segja að nemendur í 9. bekk stóðu sig með stakri prýði.  Í öðru sæti var Sæbjörn og Elín Erla er Náttúrufræðingur skólans.  Má nærri geta hvort kennararnir eru ekki að rifna úr stolti!  Myndir má finna hér .



Mynd augnabliksins

100_6961.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 1200

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn