Spilakvöld
Spilakvöld var haldið fyrir nemendur foreldra og önnur ættmenni þriðjudaginn 30. sept.
Mjög góð þátttaka var og allir skemmtu sér vel. Verðlaun voru veitt í lok spilamennsku fyrir eitt og annað.
Torfhildur kennari stjórnaði vistinni og leiðbeindi bæði börnum og fullorðnum takk Tobba.
Félagsvist var spiluð frá klukkan 18:30 - 20:00 þriðjudagskvöldið 30. sept. Tobba kennari 6.TS stjórnaði og leiðbeindi jafnt fullorðnum sem börnum. Afar góð mæting var og spilað var á 12 borðum. Það voru u.þ.b. 60 manns sem komu og áttu góða stund. Verðlaun voru veitt þeim sem stóðu sig vel og einnig fengu þeir verðlaun sem sátu þolinmóðir sem lengst. Það eru komnar inn myndir frá kvöldinu sem Þorgeir Baldursson pabbi Steinunnar Maríu tók. Vonandi verður hægt að endurtaka leikinn síðar.










