Velkomin í Síđuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Spilatími fyrir jólin


Mikið stuð og skemmtilegt á föstudaginn þegar krakkarnir komu með spilin sín í skólann, skiptu í hópa og spiluðu af kappi.

Jólaföndur á D gangi


Það var föndrað af miklum krafti á D gangi mánudaginn 12. desember. 
  • Origami jólasveinar.
  • Origami jólatré.
  • Litríkar jólastjörnur.
  • Jólakort.
Fleiri myndir frá föndurdeginum má sjá hér.

SMT dagurinn - Vinátta


Á SMT deginum í Síðuskóla 11. nóvember unnu nemendur úr 2. og 7. bekk saman að verkefnum tengdum VINÁTTUNNI. 

Í sameiningu voru búin til vinabönd og nemendur tengdust vinaböndum í orðsins fyllstu merkingu.

Meiri myndir.

Dagur lćsis


Á degi læsis unnu 7. bekkur og 2. bekkur saman. Þessir bekkir hafa verið ,,vinabekkir" frá hausti 2010 og nú lásu eldri nemendur fyrir þá yngri og öfugt. 

Myndir frá þessari vinnu nemenda má sjá hér.

Ţemadagar


Á þemadögum unnu nemendur 7. bekkjanna með 5. bekk sem er með þeim á D gangi. Unnið var í verkefnum sem tengdust heimabyggð. 
  • Nemendur bjuggu til bæklinga til kynningar á því sem þeim finnst merkilegt að heimsækja í heimabyggð. 
  • Nemendur unnu veggspjöld um fræga einstaklinga sem hafa verið nemendur í Síðuskóla á árum áður.
  • Nemendur unnu myndir sem tengdust þjóðsögum og þjóðsagnarpersónum úr nágrenninu.
  • Nemendur unnu videomyndir sem þeir unnu upp úr þjóðsögum úr Eyjafirði.
Hér má sjá myndir frá þessari vinnu.

Unniđ í Blađapassanum


Nemendur 7. bekkjar fengu Morgunblaðið sent í viku, eitt eintak á mann og unnu verkefni í Blaðapassann.

Fleiri myndir.

Mynd augnabliksins

sk_daferd_mars__10_188.jpg

Teljari

Í dag: 2
Samtals: 1193

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn