Umhverfisdagur Síðuskóla og Andanefjur
Almennt - þriðjudagur 23.september 2008 - Lestrar 75
Umhverfisdagur
Á umhverfisdegi Síðuskóla fór 4. bekkur í gönguferð. Farið var með
strætó að Eikarlundi og þaðan gengið fram hjá golfvellinum, um Naustaborgir og endað í Kjarnaskógi. Stoppað var á Hömrum
þar sem krakkarnir léku sér góða stund í leiktækjum. Veðrið var frábært þennan dag og allir skemmtu sér
vel.
Umbun - andarnefjur
Síðastliðinn föstudag fór 4. bekkur í óvissuferð. Farið var með strætó
niður í bæ og þaðan labbað og andarnefjur skoðaðar. Myndir má sjá hér.










