Vinabekkur
Almennt - föstudagur 31.október 2008 - Lestrar 78
Nemendur í 1. bekk fóru í dag eftir hádegi í heimsókn til 5. bekkjar sem er vinabekkur okkar. Nemendur spiluðu saman ýmis spil og byggðu
flotta turna, byggingar, bíla og fleira úr alls konar kubbum. Eins og oft áður leið tíminn hratt og allir með tölu áttu góða stund.










