Velkomin í Síđuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Fréttir

Jólakortagerđ

Foreldrafélagið stendur fyrir jólakortagerð nk. laugardag 19. nóvember. Líkt og í fyrra mun Bára Waag koma með efni í jólakortin en fyrir þá sem ekki vita, er hún með sérstaka skurðarvél sem sker út hin ýmsu mynstur (sjá nánar facebook síðu hennar - Handverk Báru).

Við höfum ákveðið að skipta í tvo hópa eftir aldri. 
Kl. 11:00 - 13:00 koma 1. - 4. bekkur
Kl. 14:00 - 16:00 koma 5. - 10. bekkur

Bára selur efnið gegn vægu verði.
Í boði fyrir yngri nemendur (1. - 4. bekk) verða stimplaðar myndir sem börnin líma á kort. Hægt er að fá 5 kort á kr. 150,- eða 10 kort á kr. 300,- Kortið er innifalið í verðinu.
ATH. börnin þurfa að taka með sér liti og lím.

Í boði fyrir eldri nemendur (5. - 10. bekk) verður nokkurs konar bland í poka af alls kyns útskornum munstrum. Jafnvel verður hægt að fá stimplaðar myndir. Bland í poka 5 stk. kr. 500,- og bland í poka 10 stk. kr. 1.000,- Allt efni er innifalið, nema nemendur þurfa að taka með sér liti og lím.

Til að hægt sé að afgreiða alla sem taka vilja þátt vil ég biðja ykkur að senda póst á netfangið foreldrafelagsiduskola@akmennt.is og látið vita hve mikið þið viljið fá. Taka þarf fram nafn barns og bekk og hve mikið af kortagerðarefni barnið vill fá. Pöntun þarf að hafa borist í síðasta lagi þriðjudaginn 15. nóvember svo Bára hafi tíma til að skera allt efnið út.

Við vonumst til að sjá ykkur eftir viku.
ATH. að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma með. Ef eldri systkini vilja aðstoða þau yngri þá mega þau að sjálfsögðu koma með þeim þó við höfum skiptinguna svona.  Hún er einungis hugsuð til að koma í veg fyrir troðning.


Síðuskóli
Stjórn foreldrafélags



Mynd augnabliksins

img_2237.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 1622

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn