SKÓLAFÖT.
Almennt - fimmtudagur 02.október 2008 - Lestrar 71
Nú fara skólafötin að koma og samkvæmt nýjustu fréttum ættu þau að koma snemma í næstu viku. Við biðjum foreldra að sýna þolinmæði og munum senda út tilkynningu þegar þau koma.
Aðalfundur FOKS gekk vel og situr stjórnin áfram.
Í nýjustu dagskránni er auglýsur fundur fyrir foreldra á Akureyri um hlutverk foreldra í kynfræðslu barna. Við hvetjum alla foreldra til að mæta á þann fyrirlestur í Brekkuskóla.
Að lokum viljum við minna á foreldrasamningana. Þá er hægt að nálgast hjá Siggu Bjarna á D- gangi eða tala við Svövu ritara.










