Flýtilyklar
Búðarleikur
Nemendur í 1. bekk hafa verið að læra að nota peninga. Til að þjálfunin verði sem raunverulegust þá erum við búin að setja upp verslanir þar sem hægt er að kaupa hinar ýmsu nýlenduvörur. Krakkarnir versla, borga fyrir með kennslupeningum og verslunarstjórinn þarf að gefa til baka og fylgjast vel með að allt sé rétt reiknað. Eins og sést á myndunum þá virðast allir vera glaðir með innkaup sín.
Undirsöfn
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni










