7. bekkur í Reykjaskóla
Almennt - fimmtudagur 02.febrúar 2012 - Lestrar 39
7. bekkur er í skólabúðunum í Reykjaskóla þessa vikuna. Það er mikið að gera og allir mjög duglegir að taka þátt. Það eru tímar í fjármálafræði og náttúrufræði, stöðvaleikur og íþróttir og sögustundir á Byggðasafninu. Hópurinn stendur sig mjög vel og þá ekki síst á kvöldvökunum þar sem allskonar snillingar úr Síðuskóla eru að slá í gegn.
Hér má sjá myndir frá leik og starfi og fleiri myndir eru á leiðinni.










