ICT4U Comenius verkefni Síðuskóla

Þessa dagana eru 6 nemendur á ferðalagi á vegum Síðuskóla í Ungverjalandi. Nemendurnir koma úr 9. og 10.bekk og eru það allt stelpur að þessu sinni. Ferðin hefur gengið vel og allir eru heilir heilsu, hressir og kátir. Menningarmunur landanna hefur reyndar komið eilítið á óvart og eru dömurnar sem hér eru afar hneykslaðar á reykingarvenjum Ungverja sem kveikja sér í sígarrettum þar sem þeir standa og gildir þá einu hvar þeir eru. Þetta myndi ekki gerast uppi á Fróni.
Stelpurnar vinna hörðum höndum að verkefninu sem snýst um forrit sem geta nýst kennurum í kennslustofum og eru ný af nálinni. Forritin eru til þess fallin að nemendur fái aðra sýn á verkefni sem lögð eru fyrir og hægt er að nota þau líka til að fá nýja nálgun á viðfangsefnin auk þess sem skil á verkefnum verða fjölbreyttari þegar um fleiri leiðir er að velja en að skrifa ritgerð eða gera glæru sýningu.
Bibbi, umsjónarmaður Comeniusverkefnis Síðuskóla










