Söngkeppni félagsmiðstöðvanna.
Almennt - miðvikudagur 14.desember 2011 - Lestrar 40

Fulltrúi Síðuskóla Stefanía Tara fór alla leið í lokakeppnina á síðasta ári.
Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Akureyri fer fram í Hofi í dag fimmtudaginn 15. desember kl. 19:00.
Fulltrúar Síðuskóla í keppninni í ár eru Herdís Elín Þorvaldsdóttir og Þóranna Lilja Þorbergsdóttir. Alls verða þrettán atriði í keppninni í ár með yfir tuttugu upprennandi söngstjörnum og hljóðfæraleikurum frá félagsmiðstöðvunum fjórum hér á Akureyri.
Fjögur atriði komast áfram í söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi sem fram fer á Sauðárkróki í lok janúar. Við hvetjum sem flesta til að mæta og sjá þessa upprennandi snillinga flytja sín atriði.
Miðaverð er kr. 1000 sem hægt er að kaupa í Hofi fyrir keppnina.
Félagsmiðstöðvarnar á Akureyri










