Tour de Siduskoli - Stefánsbikarinn
Almennt - mánudagur 07.júní 2010 - Lestrar 99

Keppnin er á milli nemenda í 5. - 8. bekk. Fyrstu þrír í hverjum árgangi fengu verðlaun. Keppni í opnum flokki þ.e.a.s. á milli allra keppenda burtséð frá því í hvaða bekk þeir eru var mjög jöfn. Svavar í 6.bekk endaði í þriðja sæti, Hrannar í 6.bekk varð annar en sigurvegari og þar með fyrsti handhafi Stefánsbikarsins var Ottó í 7.bekk. Ottó vann keppnina líka í fyrra og hefur því unnið keppnina frá upphafi. Þátttaka var ágæt en vegna ýmissa ástæðna var mikil óvissa með keppnina og kom það eflaust niður á þátttöku.
Allir keppendur stóðu sig vel.










