Velkomin í Síðuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Hjúkrunarfræðingur

Heilsugæsla í Síðuskóla

Heilsugæslu í grunnskólum á Akureyri er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum frá heilsugæslustöðinni á Akureyri.

Hjúkrunarfræðingur Síðuskóla er Dóra Björk Jóhannsdóttir. Viðverutími hennar er frá 8-14 mán- miðvikud og 8-12 fimmtudaga og föstudaga. Netfangið er dorajo@akmennt.is

Skólalæknir Síðuskóla er Þorgils Sigurðsson. 

Hlutverk heilsugæslu í skólum

 Heilsugæsla í skólum er framhald af ung- og smábarnavernd og felst í reglubundnum skimunum og eftirliti, fræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál. Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. 

Viðfangsefni og áhersluþættir skólaheilsugæslunnar hafa verið að þróast og breytast undanfarið og er skipulögð heilbrigðisfræðsla og hvatning til heilbrigðra lífshátta nú að jafnaði að taka meiri tíma af starfi skólahjúkrunarfræðinga.  Byggt er á hugmyndafræðinni um hin 6-h heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Eftir fræðslu fá börn fréttabréf með sér heim og gefst þá foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi. 

Á heimasíðu Miðstöðvar heilsuverndar barna http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=24  má finna nánari upplýsingar um heilsugæslu í skólum og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni. 

Slys og óhöpp á skólatíma

 

Það er ekki hlutverk skólahjúkrunarfræðings að vera með slysamóttöku í skólanum. Eftir sem áður veitir skólahjúkrunarfræðingur fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma veikindi og slys hjá nemendum á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.

Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.

Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.

Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni. Foreldrum er bent á að snúa sér til heimilislæknis og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri með heilsufarsmál sem ekki teljast til skólaheilsugæslu. 

Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á líðan og heilbrigði barna sinna.  Góð samvinna og gott upplýsingaflæði er mikilvægt til að starfsfólk skólaheilsugæslu geti sinnt starfi sínu sem best.  Því eru foreldrar hvattir til að hafa samband við hjúkrunarfræðing skólans ef einhverjar breytingar verða hjá barninu sem gætu haft áhrif á andlegt, líkamlegt eða félagslegt heilbrigði þess.  Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt um mál einstakra nemenda.

Vilji foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinginn.

Ef foreldrar/forráðamenn vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju af því sem er á verkefnalista  eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing sem fyrst.  Ef ekki heyrist frá foreldrum verður það skoðað sem samþykki.

Lyfjagjafir

Samkvæmt tilmælum frá landlækni verða engin lausasölulyf hjá skólahjúkrunarfræðingi og eiga börnin ekki að fá nein önnur lyf í skólanum en þau sem læknir hefur ávísað á þau. Sjá nánar á http://www.landlaeknir.is/?PageID=350

Foreldrar /forráðamenn þeirra barna/unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hjúkrunarfræðinga skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli.

Lús

Við viljum minna fólk á að skoða reglulega hár barna sinna og láta skólahjúkrunarfræðing vita ef  lús finnst.  Við verðum að standa saman og gera viðeigandi ráðstafanir til að hefta útbreiðslu þessa aðskotadýrs.  

Nánari upplýsingar um lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=1350og http://www.landlaeknir.is/?PageID=831.

 

 

Mynd augnabliksins

img_2961.jpg

Teljari

Í dag: 27
Samtals: 85843

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn