Velkomin í Síđuskóla

Síðuskóli á Akureyri

Persónuleg ráđgjöf

Persónuleg ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum þeirra ýmiss konar aðstoð og stuðning til þess að nemendur eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi sínu.

Persónuleg mál nemenda geta verið af ýmsum toga s.s. félagsleg, námsleg, tilfinningaleg eða tengd samskiptum. Námsráðgjafinn aðstoðar nemendur við að leita lausna og veitir þeim stuðning.

 

Námsráðgjafinn er bundin þagnarskyldu varðandi þær upplýsingar sem honum er trúað fyrir í starfi sínu.Námsráðgjafinn getur aðeins rætt trúnaðarmál við aðra hafi nemandi veitt samþykki fyrir því eða ef námsráðgjafinn telur að líf og heilsa nemandans sé í húfi.

 

Námsráðgjafi vinnur í nánu samstarfi við kennara og forráðamenn eftir því sem við á. Einnig hefur hann samráð og samstarf við aðra sérfræðinga innan eða utan skólans, svo sem sérkennara, hjúkrunarfræðing, sálfræðinga og vísar málum einstaklinga til þeirra eftir því sem við á.

Mynd augnabliksins

100_6467.jpg

Teljari

Í dag: 9
Samtals: 48870

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn