Velkomin í Síðuskóla
100 MIÐA LEIKURINN 16. – 27. Janúar 2012
Tíu heppnir nemendur voru með hrósmiðana sína í verðlaunaröðinni og umbunin að þessu sinni er  að fara í keilu með
skólastjóranum.  Nemendur voru til fyrirmyndar á sal  eins og vera ber við slíkt tækifæri.
Nöfn vinningshafa eru: Bergur 6. SEB,  Bryndís Huld 6. HL, Elmar Már 1. MB,  Esra 10. B, Eva María 9. B, Freyr Wium 5. ASR,  Guðrún 8. KLM,
Jenný 7. JÁ,  Marko 5. TS,  Steinunn 6. SEB.
Til upprifjunar um leikinn má geta þess að tilgangur hans er að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglum. 10 nemendur fá sérmerktan
umbunarmiða þá 10 daga sem leikurinn stendur yfir eða samtals 100 miða. Nemendur sem fá miða frá starfsmanni setja þá á 100 miða
spjaldið og eiga með því möguleika á að vinna í leiknum. Vinningsröðin er ákveðin fyrirfram af skólastjóra svo og
umbunin.
7. bekkur í Reykjaskóla
þátt. Það eru tímar í fjármálafræði og náttúrufræði, stöðvaleikur og íþróttir og
sögustundir á Byggðasafninu. Hópurinn stendur sig mjög vel og þá ekki síst á kvöldvökunum þar sem allskonar snillingar úr
Síðuskóla eru að slá í gegn.
Hér má sjá myndir frá leik og starfi og fleiri myndir eru á leiðinni.
Fjöltefli á Skákdeginum mikla í Síðuskóla
Skákdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt. Sigurður Arnarson tefldi fjöltefli við rúmlega 30 nemendur úr unglingadeild í tilefni
dagsins og eru meðfylgjandi myndir teknar af viðburðinum.
Leikar fóru þannig að Víðir Steinar Tómasson náði jafntefli en öðrum skákum lauk með sigri Sigurðar eftir
harða baráttu.
Hér
má sjá myndir frá fjölteflinu.
Krógaból í heimsókn hjá 10. bekk
heimsókn til 10.B í Síðuskóla. Börnin eru á Spóanum þar og komu, lituðu og dönsuðu með 10.bekkingum.  Það var
mjög erfitt að greina hvor hópurinn skemmti sér betur en óhætt er að segja að þetta braut upp dag beggja hópanna og gerði þeim
skammdegið aðeins léttara. Hókí pókí var að sjálfsögðu dansað enda uppáhaldsdans nemendanna í 10.B auk þess
sem Spóarnir fengu aðeins að hlusta á Latabæ - en ekki hvað...
Krakkarnir af Spóanum eru búnir að bjóða okkur í
heimsókn til þeirra síðar í vetur og munum við örugglega þiggja það heimboð og mæta galvösk á heimavöll
þeirra. Myndir frá heimsókninni má sjá hér.
Takk fyrir komuna krakkar.
10.B í Síðuskóla.
Skákdagurinn mikli!
seinna varð fyrsti stórmeistari Íslands og forseti alþjóða skáksambandsins FIDE.
Í Síðuskóla verður haldið upp á
þennan dag með fjöltefli þar sem Sigurður Arnarson mun tefla við um 40 krakka úr elstu bekkjunum í einu. Fjölteflið hefst kl. 9.40 og er
áætlað að það taki um tvær kennslustundir.