Skólabyrjun
Almennt - þriðjudagur 07.september 2010 - Lestrar 39
Nú er skólastarfið byrjað aftur eftir sumarfrí. Bæði nemendur og starfsfólk sérdeildar er komið aftur til starfa með kraft og kátínu að leiðarljósi. Í gær var útivistardagur skólans og fóru nemendur í ýmis verkefni útivið og í nánasta umhverfi enda veðrið mjög gott.
Það er því hægt að segja að skólaárið byrji vel.
Við höfum fengið nýtt starfsfólk til okkar, sem og nemendur og erum viss um að starfið og námið verði farsælt og gott í vetur.










