    <language>is</language>
Fréttir | Síðuskóli 
Göngum í skólann og Svakalega lestrarkeppnin
      <description><![CDATA[Í morgun hittumst við öll á sal því tilkynna átti úrslit í Göngum í skólann og Svakalegu lestrarkeppninni.
Í ár var það 9. bekkur sem hlaut bikarinn eftirsótta í Göngum í skólann og fá í verðlaun að fara á skauta í Skautahöllinni.
Steinar sagði að nánast allir bekkir hefðu hækkað hlutfall sitt í virkum ferðamáta milli ára og hvatti nemendur til að halda áfram þó veturinn hefði látið á sér kræla í morgun.
Veittar voru viðurkenningar í Svakalegu lestrarkeppninni og fengu 3 efstu í hverjum árgangi viðurkenningu fyrir að draga vagninn í sínum bekk með flestar lesnar mínútur. Sjáum mynd af lestrarhestum Síðuskóla hér.
Svo var það 3. bekkur sem hlaut titilinn Svakalegasti lestrarbekkur Síðuskóla í ár, þau lásu 750. Þau fá í verðlaun að fara í fimleikasalinn í Giljaskóla. Til hamingju krakkar. 
Hér má sjá fleiri myndir frá morgunstundinni.]]></description>
Sigurvegarar í Síðuskóla - Svakalega lestrarkeppnin
Sigurvegarar í Svakalegu lestrarkeppninni í Síðuskóla var 3. bekkur !! En þau lásu samtals 22631 mínútur eða 754 mínútur að meðaltali. Það er hvorki meira né minna en 12,5 klukkustund samfleytt eða rúmlega hálfur sólarhringur... hver og einn nemandi í bekknum. Virkilega vel gert krakkar ! Þið fáið viðurkenningaskjal og óvænt verðlaun í næstu viku.
Úrslit aðalkeppninnar verða svo tilkynnt fimmtudaginn 15. október kl 10:30 í beinni útsendingu á Youtube.
Til gamans má sýna þá 5 einstaklinga sem lásu mest í Síðuskóla þessar 3 vikur, virkilega flott hjá þeim.
1. Júlía Katrín (2014) - 3926 mín.
2. Míla (2014) - 2895 mín.
3. Sóley Líf (2014) - 2240 mín.
4. Sunna Berglind (2016) - 1675 mín.
5. Sverrir Ásberg (2018) - 1666 mín.
Áfram Síðuskóli og áfram allir lestrarhestar og bókaormar :)
Aðalfundur FOKS verður haldinn 1. október kl. 19
3. bekkur leiðir áfram Svakalegu lestrarkeppnina í Síðuskóla
Eftir tvær vikur leiðir 3. bekkur áfram Svakalegu lestrarkeppnina innan Síðuskóla. Þau lesa samtals 555,5 mínútur að meðaltali á hvern nemanda í bekknum síðan keppnin hófst. Vel gert 3. bekkur! 5. bekkur vermir áfram annað sætið og hafa lesið 395,6 að meðaltali. Í þriðja sæti hafa orðið vendingar en 2. bekkur hefur stolið því af 6. bekk síðan í síðustu viku með lestur uppá 345,5 á hvern nemanda. 
Það getur allt gerst enda nóg eftir af keppninni, heil vika til að ná þessum lestrarormum á toppnum ef allir leggja sig fram í bekknum. Og saman ætlum við auðvitað að verða Svakalegasti lestrarskóli landsins.
Áfram Síðuskóli :)]]></description>
Svakalega lestrarkeppnin 2026
Nú er í gangi Svakalega lestrarkeppnin til 6. október. Þetta er lestrarkeppni milli allra grunnskóla í landinu, 1.-7. bekkur.
Þetta er einfalt... það á að lesa lesa lesa (og hlusta) eins mikið og mögulegt, heima og í skólanum og bara alls staðar - skrá mínútur! Við í Síðuskóla erum saman í liði í landskeppninni og keppum um að verða Svakalegasti lestrarskóli landsins ! En við viljum líka hafa smá keppni hér innan hús þannig að við tökum stöðuna vikulega. Svakalegasti lestrarbekkur Síðuskóla fær auðvitað líka verðlaun í lok keppninnar, þannig nú sem áður gildir að standa saman og allir leggja sitt að mörkum.
Svo fáum við heimsókn næstkomandi mánudag frá Evu Rún og Blæ rithöfundum og stjórnendum keppninnar til að hvetja okkur áfram, þá verður gaman að sjá hver staðan er!
Eftir fyrstu vikuna þá leiðir 3. bekkur hér innanhús, verður það þannig í næstu viku?
Úrslit í Ólympíuhlaup ÍSÍ í Síðuskóla
Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur verið fastur liður í skólastarfi frá árinu 1984. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum.
Áherslan er fyrst og fremst á holla hreyfingu, þátttöku allra og að nemendur njóti þess að taka þátt.
Hlaupinn er Síðuskólahringurinn sem er 2,2 km. Meðaltal 80% nemenda í hverjum árgangi er reiknað út og besti meðaltalstíminn vinnur. Þetta er oft tæpt á toppnum en 10. bekkur hafði það í ár og fékk í fyrsta lagi farandbikarinn ásamt því að fara í næstu viku á Sprettinn saman og búa til sína eigin pizzu og snæða. Til hamingju 10. bekkur.
Einnig er veitt viðurkenningaskjöl fyrir 2 hröðustu tímana í hverjum bekk og svo verðlaunapeningar fyrir 3 hröðustu tímana á hverju stigi - yngsta, mið- og elsta stigi. Til hamingju öll sömul og hér má sjá myndir frá verðlaunaafhendingunni og söngsal í gærmorgun. Hér að neðan eru töflur með úrslitum einstaklinga.
🏃 1.–4. bekkur
Sæti
Verðlaun
Nafn
Bekkur
Tími
1
🥇 Gull
Björgvin Stefánsson
4. bekkur
10:31
2
🥈 Silfur
Styrmir Hrafn Eiríksson
4. bekkur
10:32
3
🥉 Brons
Elmar Breki Jónsson
3. bekkur
12:15
🏃 5.–7. bekkur
Sæti
Verðlaun
Nafn
Bekkur
Tími
1
🥇 Gull
Baldvin Breki Helgason
7. bekkur
8:37
2
🥈 Silfur
Óliver Máni Andrésson
6. bekkur
10:03
3
🥉 Brons
Sunna María Helgadóttir
7. bekkur
10:38
🏃 8.–10. bekkur
Sæti
Verðlaun
Nafn
Bekkur
Tími
1
🥇 Gull
Óliver Andri Einarsson
9. bekkur
8:35
2
🥈 Silfur
Sigurður Atli Guðmundsson
9. bekkur
8:43
3
🥉 Brons
Fanney Mjöll Arnarsdóttir
9. bekkur
8:44
Tveir hröðustu tímar í hverjum bekk:
Bekkur
1. hraðastur
Tími
2. hraðastur
Tími
1. bekkur
Steinþór Kai Sigurðsson
14:57
Fannar Hugi Kristbjörnsson
16:17
2. bekkur
Jökull Heiðar Knutsen
13:28
Jökla Lind Baldvinsdóttir
14:39
3. bekkur
Elmar Breki Jónsson
12:15
Magnús Gauti Árnason
12:37
4. bekkur
Björgvin Stefánsson
10:31
Styrmir Hrafn Eiríksson
10:32
5. bekkur
Gunnar Helgi Björnsson
10:52
Viktor Aleksander Gusev
10:52
6. bekkur
Óliver Máni Andrésson
10:03
Ólafur Steinars Steinarsson
11:10
7. bekkur
Baldvin Breki Helgason
8:37
Sunna María Helgadóttir
10:38
8. bekkur
Tristan Andri Knutsen
10:02
Róbert Aron Poulsen
10:04
9. bekkur
Óliver Andri Einarsson
8:35
Sigurður Atli Guðmundsson
8:43
10. bekkur
Sunneva Ósk Broddadóttir
8:45
Emma Júlía Cariglia
9:34
Náttúrufræðingur Síðuskóla 2026
Í morgun var útnefndur Náttúrufræðingur Síðuskóla fyrir skólaárið 2026-2027 auk þess að veita nokkrum nemendum viðurkenningu fyrir góðan árangur í "Náttúrufræðingnum". Keppnin er haldin ár hvert á degi íslenskrar nátttúru og fjallar um að þekkja sem flest náttúrufyrirbæri af myndum. Í myndaalbúminu hér að neðan má sjá hvað var spurt um í ár. 
Í ár er Karen Hannesdóttir í Náttúrufræðingur Síðuskóla og fær nafn sitt á platta uppá vegg ásamt öllum "Náttúrufræðingum" skólans frá árinu 2002. Eftirfarandi nemendur viðurkenningu fyrir góðan árangur:
Sverrir Ásberg Friðgeirsson, 3. bekk
Lísa Lind Vignisdóttir, 4. bekk
Sóley Líf Pétursdóttir, 7. bekk
Helga Berglind Pálsdóttir, 9. bekk
Íris Alda Sigfúsdóttir, 9. bekk
Sjá myndir hér.
Barna og menntamálaráðherra í heimsókn í Síðuskóla
      <description><![CDATA[Í dag heimsótti menntamálaráðherra, Inga Sæland, Síðuskóla ásamt fríðu föruneyti. Ólöf skólastjóri, Helga og Malli deildarstjórar tóku á móti þeim. Aðrir gestir voru Kristín fræðslustjóri; Óðinn Svan formaður bæjarráðs. Tilefnið var að kynna sér hið góða starfs sem fer fram í skólanum en þó sérstaklega sérdeildir okkar. Fyrst var snæddur hádegisverður með 6. bekk. Því næst kíkti Inga Sæland við í myndmennt í 7. bekk og skoðaði svo geisigóða kartöfluuppskeru 2. bekkjar. Svo lá leiðin inn í Ásinn, sérdeild yngsta stigs þar sem hún ræddi Sigurlaugu deildarstjóra. Næst var litið við í Ísat stofunni þar sem nemendur 5. bekkjar, frá fimm mismunandi löndum, voru að klára vinnuvikuna sína í Kahoot - málfræðikeppni. Að lokum hitti hún Ingibjörgu og Margréti sérkennara inní Áttunni. Á leið hennar um skólann gripu svo nokkrar stúlkur 9. bekkjar tækifærið og spurðu út í væntanlegt símabann í skólum semog hækkun leyfilegs aldurs á samfélagsmiðla uppí 15. ára. Þær lýstu áhyggjur sínum af málinu og Inga gaf sér góðan tíma að spjalla við þær og útskýra hvað liggur að baki.
Skemmtileg heimsókn í okkar góða skóla: Síðuskóla, sjá myndir hér.
Dagur íslenskrar náttúru
      <description><![CDATA[Í tilefni dags íslenskrar náttúru fóru nemendur og starfsmenn Síðuskóla út að njóta útiveru og náttúrunnar. Til stóð að fara í gær en vegna mikillar rigningarspár var ákveðið að fresta dagskránni um einn dag. Veður var alveg ágætt þó hafi dropað fyrst um morguninn, enda enginn verri þó hann vökni smá. Til útivistar var ýmist farið gangandi, hjólandi eða í strætó til fjarlægari áfangastaða. Nemendur höfðu með nesti og skemmtu sér við leik og störf.
Ýmsu var safnað t.d. litríkum laufblöðum sem unnið var með og rusli sem á ekki heima í náttúrunni. 2. bekkur tók upp gríðarstórar kartöflur í innigarðinum sem fjölskyldur þeirra fá heim í dag. Farið var í leiki og framkvæmdar tilraunir til að skilja betur náttúruna og lífríkið allt um kring.
Einnig var hin árlega keppni um "Náttúrufræðing Síðuskóla" haldin þar sem nemendur eiga að þekkja fugla, plöntur og staði á Íslandi. Úrslitin verða tilkynnt á sal næstkomandi þriðjudag ásamt úrslitum Ólympíuhlaupsins.
Hér má sjá margar skemmtilegar myndir frá deginum. 
Verðlaun úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur
Um nýliðna helgi var haldin ráðstefnan "Læsi til náms" í Háskólanum á Akureyri á vegum Miðstöðvar skólaþróunar HA (MSHA) og Miðstöðvar menntunar og skólaþróunar (MMS). Þar voru veitt verðlaun í fyrsta sinn úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur fyrir framúrskarandi starf í læsiskennslu. Lilju Þorkelsdóttir kennari við Síðuskóla fékk viðurkenningu fyrir ötult starf við innleiðingu Byrjendalæsis undanfarin ár. Við erum afar stolt af því góða starfi sem Lilja hefur innt af hendi, bæði fyrir byrjendalæsi og störfum sínum við Síðuskóla. Hún er vel að því komin að fá viðurkenningu sem framúrskarandi kennari og leiðtogi. Til hamingju Lilja !
Ólympíuhlaup ÍSÍ - göngum í skólann
      <description><![CDATA[Í gær, fimmtudaginn 10. september, hlupu nemendur og starfsmenn Síðuskóla hið árlega Ólympíuhlaup ÍSÍ. Hlaupinn var Síðuskólahringurinn sem er 2,2 km. Veðrið var mjög gott þó rignt hefði duglega um morguninn. Mikil stemning var á lóðinni þegar þátttakendur komu í mark undir dúndrandi tónlist og lófaklappi. Allir þátttakendur fengu ávaxtabita. Til að finna út sigurvegarann verður lagður saman tími 80% hvers árgangs. Úrslitin verða tilkynnt á sal næsta fimmtudag og fær ágangurinn sérstakan farandbikar. 
Dagurinn markar líka upphaf hreyfiverkefnisins Göngum í skólann. Þar gildir að skrá virkann ferðamáta til og frá skóla.
Myndirnar eru allmargar að þessu sinni enda margir hlaupagarpar í Síðuskóla :) Einnig má sjá Blossa, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015, bregða fyrir.
Gönguferð
      <description><![CDATA[Það viðraði afskaplega vel til gönguferðar í gær einsog sjá má í myndasafni hér að neðan.
Farið var með alla nemendur og starfsfólk, frá Síðuskóla sem leið liggur upp í Móahverfi og þaðan áfram upp í Lögmannshlíð. Gengið var hringur sem er 6,2 km. Veðrið lék við okkur, bæði þurrt og hlýtt. Nestisstopp var tekið í móunum við Síðuskólaskóginn okkar, en þar hafa nemendur gróðusett tré í gegnum árin og hefur smám saman myndast þónokkur skógarlundur sem vex vel og dafnar. 
Sjá myndir hér
Skólasetning 2026
      <description><![CDATA[Skólaárið er hafið :) Síðuskóli var settur í morgun fyrir starfsárið 2026-´27. 
Það voru kátir krakkar og glaðlegir starfsmenn sem mættu til starfa í morgun, enda fyrsti skóladagurinn á nýju starfsári. Ólöf skólastjóri setti skólann, fyrst fyrir 2.-5. bekk kl. 9 og svo 6.-10. bekkur kl. 10. 1. bekkingar mættu auðvitað líka í dag en fyrsta daginn koma þau í einstaklingssamtöl við umsjónakennarana ásamt foreldrum sínum.
Ólöf bauð öll velkomin til starfa aftur og sérstaklega nýja nemendur og starfsmenn; sem við ætlum að taka vel á móti. Svo fór hún stuttlega yfir einkunnarorð skólans, ábyrgð, virðing og vinátta, ásamt þær stefnur sem við störfum eftir: SMT skóli, Grænfána- og Unicef skóli. Fánar skólans sem dregnir eru á hún fyrir framan aðalinngang Síðuskóla sýnir þær, ásamt regnbogafánanum sem minnir okkur á að öll erum við velkomin hér einsog við erum. 
Við sem erum saman Síðuskóla
sumir eins og álfar, aðrir tröll,
við sem erum saman í Síðuskóla
sigrum fjöll – alla leið.
Sjá myndir hér
Upphaf skólaársins 2026-2027
Síðuskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst. Tímasetningar eru sem hér segir:2. - 5. bekkur mætir kl. 9:00.6. - 10. bekkur mætir kl. 10:00.
Nemendur mæta í sínar heimastofur og koma síðan á sal með starfsfólki. Hér fyrir neðan er hægt að sjá kort af skólanum og á því eru heimastofur bekkjanna. Foreldrar og nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtal til umsjónarkennara með tölvupósti.
Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir með börnunum sínum á skólasetningu, við biðjum þá sem mæta með sínum börnum að mæta með þeim fyrst í heimastofu.Skólinn hefst svo samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 25. ágúst.Eins og áður munum við byrja haustið á úti íþróttum svo það er mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri.
Skólaslit Síðuskóla 2026
      <description><![CDATA[Síðuskóla var slitið þriðjudaginn 9. júní.
Dagurinn var fallegur og bauð nemendur velkomna í kærkomið sumarfrí. Fyrir hádegi mættu nemendur 1.-9. bekk á sal og áttu einnig stund saman inni í bekk með kennurunum sínum. 10. bekkur var svo útskrifaður frá Glerárkirkju kl. 15 en í ár kláruðu alls 53 nemendur grunnskólagöngu sína við Síðuskóla og fara nú á vit nýrra ævintýra. Við óskum þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum. Svo kveðja alltaf einhverjir starfsmenn að vori, bæði eftir stutt og löng stopp við skólann. Í ár voru þær Bryndís, Erna, Marta, Sigrún og Svava kvaddar eftir áratuga starfsferil við skólann og þökkuð vel unnin störf og tryggð við skólann. Hér má sjá myndir frá öllum deginum.
Síðasti skóladagurinn
      <description><![CDATA[Á mánudaginn var svo síðasti skóladagurinn þar sem við nutum útiveru og ekta íslenskt veður... sem sagt alls konar. Það var virkilega gaman og allir glaðir að leika sér saman um alla skólalóð, hjólað, hoppað, sippað og fleira. Hér má sjá skemmtilegar myndir frá deginum ásamt grillinu sem er rúsínan í pylsuendanum á þessum degi. Og 8. bekkur sér um grill og að setja á pylsur fyrir alla :)
Umhverfisdagur 5. júní
      <description><![CDATA[Í Síðuskóla erum við með umhverfisdaga sem snúast þá um uppbrot á hefðbundnu námi, að vinna og vera úti eða annars staðar :) Hér má sjá myndir frá fyrri deginum þar sem nemendur yngsta og miðstigs, plús 8. bekkur, brölluðu ýmislegt skemmtilegt.
Yngsta stig - myndir
Miðstig - myndir
1. bekkur haustið 2026
      <description><![CDATA[Það voru glaðir og hressir krakkar sem komu í heimsókn í gær í Síðuskóla. Þau ætla nefnilega að byrja í 1. bekk í haust og var spenningurinn mikill að koma og skoða skólann og sjá hvernig allt lítur út hjá okkur. Foreldrar og forráðamenn fengu smá kynningu á skólanum og allir sem byrja í 1. bekk fá húfu merkta skólanum og svo fengu þau líka ís í tilefni dagsins. Það var virkilega gaman að fá hópinn til okkar og ekki annað að sjá en að allir væru tilbúnir að hefja skólagöngu í ágúst. Sjá myndir hér.
Brunaæfing í Síðuskóla
      <description><![CDATA[Í morgun var haldin brunaæfing í Síðuskóla. Það er mjög mikilvægt að æfa sig í að bregðast við ef það skyldi í alvörunni kveikna í skólanum. Æfingin gekk mjög vel, allir fóru rólega út og stilltu sér upp í röð á skólalóðinni hjá rólunum. Þegar búið var að telja og tryggja að allir nemendur og starfsmenn voru komnir út úr húsi fóru allir til sinna starfa aftur. Fulltrúar frá Slökkviliðinu komu líka til að fylgjast með að við gerðum rétt og leiðbeindi. Þetta er líka gert til að prófa kerfið og vera viss um að það virki eins og þá á að virka.  
Hreinsun skólalóðar
      <description><![CDATA[Í Síðuskóla skipta árgangar með sér mánuðunum í lóðarhreinsun skólans. Góða veðrið í gær nýttu krakkarnir  6. bekk þegar þau fóru um allt og inn í beð að hreinsa upp rusl sem fýkur til okkar. Glaðir og duglegir krakkar einsog sjá má hér.