Jól í skókassa

Eins og undanfarin ár taka nemendur 7. bekkjar þátt í verkefninu Jól í skókassa. Þetta er í sjötta sinn sem Síðuskóli er með. Að þessu sinni fóru rúmlega 20 kassar frá okkur. Nemendur pökkuðu inn tómum skókössum og söfnuðu dóti í þá handa börnum í Úkraníu. Það sem þarf að vera í hverjum kassa er tannbursti, tannkrem, sápa, þvottapoki, ritföng, fatnaður, dót og nammi. Auk þess eru 1000 kr. settar í hvern kassa upp í sendingarkostnað. Nemendur pössuðu vel upp á að allt væri með. Kassarnir voru afhentir í Sunnuhlið þar sem nemendur og kennarar fengu frekari fræðslu um verkefni. Hér má sjá myndir sem teknar voru er nemendur unnu þetta skemmtilega verkefni.