Nýverið sá kennaranemi frá Háskólanum á Akureyri um kennslu
í 6. bekk og útbjó verkefni um stjórnmál. Hann byrjaði að kynna ýmis hugtök
tengd stjórnmálum og kosningum en helst sveitastjórnarkosningum þar sem þær eru
framundan. Bekknum var skipt upp í sex hópa sem áttu að gera veggspjald með
nafni flokks, merki og helstu stefnumálum. Þegar flokkarnir voru tilbúnir fóru
þeir inn í 5. bekk og héldu framboðsræðu og veggspjöldin hengd þar upp.
Kennarar og nemendur í 5. bekk aðstoðuðu okkur með því að ræða stefnumál
flokkana og hvernig lýðræði virkar. Eftir viku umræður var gerður kjörklefi og
nemendur 5. bekkjar gengu til kosninga með skipaðan kosningastjóra sem sá um að
allt færi fram með réttum hætti. Malli deildarstjóri sá um að telja atkvæðin úr
kjörkassanum. Skemmtilegt verkefni um
lýðræði sem nemendur lærðu mikið af. Hér má sjá myndir.