Jólakveðja
Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir. Skrifstofan er lokuð þannig að hringja verður beint í síma Frístundar 461 3473.
Í síðustu viku var haldin flokkunarkeppni á milli árganga. Keppnin var þrískipt, yngsta stig, miðstig og unglingastig. Keppnin var jöfn og spennandi en 4. bekkur lenti í 4. sæti, 9. bekkur í 3. sæti og 6. bekkur í 2. sæti. Öll þessi lið voru með 40 atriði rétt flokkuð af 44 og réðist sætaröðun af tímatökum. Það var 7. bekkur sem vann keppnina með 42 atriði rétt flokkuð. Það er magnað að sjá hve nemendur eru góðir í að flokka. Markmið með keppninni er að þjálfa flokkun og auka með því móti endurvinnsluhlutfall.
Myndir frá flokkunarkeppni eru hér.
Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir. Skrifstofan er lokuð þannig að hringja verður beint í síma Frístundar 461 3473.
Hér er að finna myndir frá litlu jólunum.Það var dásamlegt að geta haldið þau með hefðbundnum hætti.
Hin árlega spurningakeppni í 8.-10. bekk fór fram 20. desember. Allir þátttakendur stóðu sig með prýði en það var lið 9. bekkjar sem stóð uppi sem sigurvegari. Í liðinu voru þau Gunnar Brimir, Ívan Þór og Sóley Eva. Hér eru nokkrar myndir frá keppninni.
Kynningarmyndbönd um grunnskólakerfið á Akureyri hafa verð gerð á 4 erlendum tungumálum auk íslensku, það er ensku, pólsku, spænsku og rússnesku Jafnframt er hægt að finna þau hér á síðunni undir grunnskólar – móttaka nemenda. Vonum við að myndböndin komi að góðum notum við að kynna grunnskólakerfið okkar og að bjóða erlenda nemendur og foreldra þeirra velkomin til Akureyrar. Stefnt er að því að bæta fleiri þýðingum inn í sjóðinn okkar á næstu árum.
(Tekið af www.erlendir.akmennt.is)
Litlu jólin verða þann 21. desember. Það koma allir í skólann kl. 9.00 og fara heim um kl. 11.00. Fyrst verður hópnum skipt í salinn þar sem nemendur í leiklistarvali á miðstigi sýna jólaleikrit og heimastofur en eftir það hittast svo allir í íþróttasalnum og ganga saman í kringum jólatréð.
Frístund er opin þennan dag frá kl. 7.45-9.00 og 11.00-16.15 fyrir þá sem þar eru skráðir.
Í gær vorum við svo heppin að fá tvo rithöfunda í heimsókn til þeirra, það voru þeir Ævar Þór Benediktsson og Bjarni Fritzson. Ævar las fyrir 7.-10 bekk úr nýjustu bók sinn, Drengurinn með ljáinn. Bjarni Fritz las úr báðum nýju bókunum sínum, Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi og Salka - Tímaflakkið. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Í dag var jólaföndurdagur hjá okkur í skólanum. Búnir voru til alls konar fallegir hlutir og skrifuð jólakort. Nemendur fengu svo heitt kakó í frímínútunum. Hér má sjá skemmtilegar myndir frá deginum.
4. bekkur var með rafmagnslausan dag í dag og fóru nemendur m.a. út með vasaljós í göngutúr í morgun.