Félagsmiðstöðin Undirheimar

Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi barna og unglinga og gegna því veigamikla hlutverki að sinna tómstunda- og félagsmálum utan hefðbundins skólatíma. Markhópur félagsmiðstöðvanna er unglingar í 8. - 10. bekk en einu sinni í mánuði er í boði viðburður fyrir miðstig grunnskólans.

Félagsmiðstöð á að stuðla að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal unglinganna og örva félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Starfsemi félagsmiðstöðvanna er skipulögð af unglingunum sjálfum í samráði við starfsfólk.

Boðið er upp á fjölbreytta klúbbastarfsemi og einnig opin hús, þannig að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikilvægt er að börnin og unglingarnir finni að þau séu velkomin og talað við þau á jafnréttisgrundvelli. Einnig gegnir félagsmiðstöðin ákveðnu forvarnahlutverki, hvort heldur sem er í gegnum leik eða skipulagt forvarnastarf.

Félagsmiðstöðin er staðsett í sal skólans. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hópastarf og tímatöflu. 

Hér er að finna upplýsingar um félagsmiðstöðina, hvað er í boði fyrir hverja og hvenær.

Hér má lesa nánar um Félagsmiðstöðvar á Akureyri