Fréttir

Innkaupalistar fyrir skólaárið 2009-2010

Ágætu foreldrar. Hér er að finna innkaupalista fyrir næsta skólaár. Eitt og annað á þessum listum er eflaust til frá fyrri skólaárum og hægt að nota áfram. 1.bekkur    2.bekkur     3.bekkur    4.bekkur    5.bekkur 6.bekkur    7.bekkur     8.bekkur    9.bekkur    10.bekkur *Í innkaupalistum fyrir 2, 3, 5, 6, 7. og 10. bekk hafa verið lagfærðar villur.
Lesa meira

Myndir, myndir, myndir.

Í myndamöppu 5. bekkjar eru komnar myndir frá ferð þeirra í siglingaklúbbinn Nökkva þar sem nemendur fengu að sigla á kajak og seglbátum. Myndirnar má sjá hér. Í myndamöppu 6. bekkjar eru myndir af vorferð í fjöruna við Bárufell, þar sem steinum var safnað og hamborgarar grillaðir. Daginn eftir voru gerð listaverk úr steinunum. Myndir má sjá hér. Í myndamöppu 9. bekkjar eru myndir frá vorferð þeirra og siglingu á Húna. Myndir má sjá hér. Á dögunum var haldið íþróttamót kvenna milli starfsfólks og nemenda í 10. bekk. Keppt var í handbolta, bandý og fótbolta. Myndir frá þessum viðburði má sjá hér. Myndir frá hjólreiðakeppni nemenda í 5.-8. bekk má sjá hér. Í myndamöppu 4. bekkjar eru komin inn nokkur myndaalbúm. Gróðursetningu má sjá hér. Eggjaverkefni má sjá hér. Ferð á Iðnaðarsafnið má sjá hér. Útivistardag má sjá hér. Í myndamöppu hjá 2. bekk eru komnar inn myndir frá vordögum. Myndirnar má sjá hér.
Lesa meira

Skólaslit og fleira

Miðvikudag og fimmtudag eru vordagar í skólanum, þá daga lýkur kennslu klukkan 12:30. Föstudaginn 5. júní n.k. eru skólaslit. 1. - 4. bekkur mætir kl. 10:00, 5. - 9. bekkur mætir kl. 11:00 og 10. bekkur í Glerárkirkju kl. 18.00.  
Lesa meira

Fyrsti útskriftarárgangur Síðuskóla 20 ára

Laugardaginn 23. maí kom fyrsti útskriftarárgangur Síðuskóla í heimsókn í tilefni þess að nú eru 20 ár síðan hópurinn lauk grunnskólaprófi. Mætingin var góð og komu 20 af 23 sem í hópnum voru. Einnig mætti Ragnhildur Skjaldardóttir sem var umsjónarkennari þeirra í þrjú ár en Ragnhildur var aðstoðarskólastjóri í mörg ár og skólastjóri í afleysingum. Árgangurinn var búinn að vera í ýmsum skólum á Akureyri en þrjú síðustu árin var hann í Síðuskóla og alltaf elstu nemendurnir meðan þau voru hér. Í tilefni afmælisins færði hann Síðuskóla málverk að gjöf  sem ein úr hópnum, Guðrún Vaka (GVAKA, listamannsnafn) málaði af skólanum. Smelltu á lesa meira til að sjá mynd af málverkinu.  
Lesa meira

Brunaæfing

  Þriðjudaginn 12. maí var haldin rýmingaræfing í Síðuskóla. Hvorki nemendur né starfsfólk vissi að til stæði að halda æfingu. Tilgangurinn var að sjá hve langan tíma tæki að rýma skólann þegar enginn vissi hvað stæði til. Æfingin gekk í alla staði mjög vel og tók 3.51 mín að tæma skólann. Slökkviliðið var heldur lengur á ferðinni og stafaði það af gatnaframkvæmdum. Myndir má sjá hér. Öryggisnefnd.
Lesa meira

Próftafla maí 2009

Próftaflan fyrir nemendur í 7.-10. bekk er komin inn og má sjá hana hér.
Lesa meira

Tilkynning frá FOKS

Ákveðið hefur verið af stjórn FOKS að hætta við vorhátíð og halda í staðinn hausthátíð. Hátíðin er áætluð 5.september. Í haust á Síðuskóli 25 ára afmæli og er það  hugmyndin  að gera eitthvað sniðugt. Vegna skiplagningar langar okkur að  biðja bekkjarformenn  allra bekkja (nema 10. bekkjar) að hitta okkur 19. mai. kl.20.15. Þarætlum við að fara yfir stöðuna, koma með hugmyndir  og fleira. Við sendum bekkjarformönnum tilkynningu þegar nær dregur. Í stjórn FOKS vantar gott fólk og á aðalfundi, sem verður 10. september þarf að kjósa í nýja stjórn. Við viljum biðja fólk um að láta okkur vita ef það hefur áhuga á að vinna í skemmtilegu félagi með skemmtilegu fólki.
Lesa meira

Heimsókn 1. bekkjar til eldri borgara

Í dag, föstudaginn 8. maí, fóru nemendur í 1. bekk í heimsókn til eldriborgara í félagsmiðstöðina í Lindasíðu. Þar sýndu nemendur árshátíðaratriði sitt, umhverfisverkefnið og tóku svo nokkur lög í lokin. Þessi heimsókn var upphafið af áframhaldandi samstarfi bekkjarins og eldri borgara í félagsmiðstöðinni um ókomin ár. Næsta heimsókn er áætluð í september næstkomandi. Myndir má sjá hér.
Lesa meira

Úrslit úr umhverfisverkefni

Það var verkefni 4. bekkjar sem bar sigur úr býtum í umhverfissamkeppni Síðuskóla. Verkefni þeirra var að endurnýta eggjabakka á fjölbreyttan hátt. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.
Lesa meira

Umhverfisverkefnasýning

Í dag, fimmtudaginn 7. maí fór fram sýning á verkefnum nemenda í umhverfissamkeppni skólans: Verum umhverfisvæn - Gerum vel. Myndir frá sýningunni má sjá hér. Sigurvegarar verða svo tilkynntir á morgun, föstudaginn 8. maí.
Lesa meira