09.09.2014
Í dag fór skólahlaupið fram í Síðuskóla. Þar hlupu margir efnilegir hlauparar og frábær árangur hjá
nemendum. Nemendum er skipt í 3 hópa, yngsta stig, miðstig og elsta stig og síðan kynjaskipt í
hópunum. Hlaupið fór í alla staði vel fram í frábæru veðri og hér fyrir neðan má sjá úrslitin í öllum
flokkum.
Fyrstu myndir frá hlaupinu eru komnar inn á síðuna.
ÚRSLIT
STRÁKAR 8. - 10. bekkur.
1. Ragúel Pino Alexandersson 8.B 08: 14
2. Haukur Brynjarsson 9.SJ 08:33
3. Hilmir
Kristjánsson 10.HK 08:42
STELPUR 8. -10. bekkur.
1. Hulda Karen Ingvarsdóttir 8.BJ 09:14
2. Ágústa Dröfn Petursdóttir 9.SJ
09:38
3. Helga Klemenzdóttir 10.HK 09:53
STRÁKAR 5. - 7. bekkur.
1. Sigfús Fannar
Gunnarsson 7.KH 09:07
2. Aron Ingi Magnússon 5.HB 09:14
3. Elmar Þór Jónssón 7.KH 09:20
STELPUR 5. - 7. bekkur.
1. Írena Sunna Björnsdóttir 5.HB
10:09
2. Andrea Ýr Reynisdóttir 7.KH 11:40
3. Vaka Jónsdóttir 7.KH 12:31
STRÁKAR 1. - 4. bekkur.
1. Ingimar Arnar Krístjánsson 4.MB
10:40
2. Viktor Smári Ingusson 3.MBT 10:54
3. Daníel Hrafn Ingvarsson 3.ASR 10:55
STELPUR 1. - 4. bekkur.
1. Kristel Eva Gunnarsdóttir 4.MB 10:58
2. Sólveig Alexandra Jónsdóttir 4.SES 11:20
3. Rakel Alda Steinsdóttir 4.MB 12:50
Lesa meira
11.09.2014
Boðskort
Í haust eru 30 ár frá því Síðuskóli hóf starfsemi
sína. Af því tilefni er foreldrum, fyrrum starfsmönnum og öðrum velunnurum boðið í hátíðardagskrá og kaffi þann 11.
september klukkan 16:30 í íþróttahúsinu. Allir velkomnir.
Lesa meira
06.09.2014
Á fimmtudag, 5.september tók 6.bekkur strætó niður í Nökkva, siglingaklúbb. Þar var tekið vel á móti okkur og
allir fengu að prófa báta og fara með spíttbát. Veðrið gat ekki verið betra og dagurinn var frábær.
Hérna má sjá myndir úr ferðinni.
Lesa meira
04.09.2014
Í dag var haldin brunaæfing í skólanum. Kerfið fór af stað upp úr klukkan 9 og allir fóru út og gengu í röðum suður
fyrir hús þar sem bekkjum var raðað upp eftir aldri. Kennarar voru með spjald á lofti sem er rautt öðru megin og grænt hinu megin en það gefur
til kynna hvort allir í hópnum hafi skilað sér út.
Æfingin gekk vel og starfsfólk og nemendur með allt á hreinu. Tveir nemendur urðu eftir inni í skólanum, sem var fyrirfram ákveðið og
reykkafarar frá slökkviliði fóru inn og sóttu þá.
Lesa meira
03.09.2014
Hér má finna fréttabréf septembermánaðar.
Lesa meira
29.08.2014
Á fimmtudaginn var 6. bekk boðið í siglingu með Húna II. Krakkarnir fengu fræðslu frá Hafró um
borð og síðan var rennt fyirir fisk í blíðskaparveðri. Að lokum var partur af aflanum grillaður og allir fóru alsælir heim með fisk
í poka.
Myndir úr ferðinni má sjá hér ásamt fleiri myndum
frá vinnu fyrstu daganna.
Lesa meira
29.08.2014
Hér má finna fyrsta fréttabréf skólaársins 2014-2015.
Lesa meira
11.08.2014
Skólasetning í Síðuskóla verður fimmtudaginn 21. ágúst. Nemendur mæta á setningu
í sal skólans en síðan verður stutt stund með umsjónarkennara í stofum. Nemendur sem hefja nám í 1. bekk verða boðaðir
í viðtal ásamt foreldrum hjá umsjónarkennara 21. eða 22. ágúst.
2. - 4. bekkur klukkan 9:00
5. - 7. bekkur klukkan 9:30
8. - 10. bekkur klukkan 10:00
Föstudaginn 22. ágúst verður skóli samkvæmt stundaskrá nema hjá 1. bekk þar sem enn
verða foreldraviðtöl. Nemendur í 1. bekk mæta mánudaginn 25. ágúst og eiga þá stuttan skóladag en þriðjudaginn 26.
ágúst mæta þeir skv. stundaskrá.
Kennarar við skólann hefja störf föstudaginn 15. ágúst.
Lesa meira
08.07.2014
Námsgagnalista
fyrir veturinn 2014-2015 má finna hér.
Lesa meira
12.06.2014
Nú er skólaárið á enda og lauk því með umhverfisdögum þar sem námið
fór fram utandyra. Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þessa daga en seinni daginn var endað á grillveislu í
stóra inngarðinum í rjómablíðunni sem sést á þessum myndum. Útskrifaðir voru 54
nemendur frá skólanum og óskum við þeim til hamingju og velfarnaðar
á nýjum vettvangi.
Að lokum viljum við þakka ykkur fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og vonum að þið hafið
það gott í sumarleyfinu.
Skólinn hefst að nýju
með skólasetningu þann 21. ágúst.
Með sumarkveðju,
Starfsfólk Síðuskóla
Lesa meira