Í dag heimsótti menntamálaráðherra, Inga Sæland, Síðuskóla ásamt fríðu föruneyti. Ólöf skólastjóri, Helga og Malli deildarstjórar tóku á móti þeim. Aðrir gestir voru Kristín fræðslustjóri; Óðinn Svan formaður bæjarráðs.
Tilefnið var að kynna sér hið góða starfs sem fer fram í skólanum en þó sérstaklega sérdeildir okkar. Fyrst var snæddur hádegisverður með 6. bekk. Því næst kíkti Inga Sæland við í myndmennt í 7. bekk og skoðaði svo geisigóða kartöfluuppskeru 2. bekkjar. Svo lá leiðin inn í Ásinn, sérdeild yngsta stigs þar sem hún ræddi Sigurlaugu deildarstjóra. Næst var litið við í Ísat stofunni þar sem nemendur 5. bekkjar, frá fimm mismunandi löndum, voru að klára vinnuvikuna sína í Kahoot - málfræðikeppni. Að lokum hitti hún Ingibjörgu og Margréti sérkennara inní Áttunni. Á leið hennar um skólann gripu svo nokkrar stúlkur 9. bekkjar tækifærið og spurðu út í væntanlegt símabann í skólum semog hækkun leyfilegs aldurs á samfélagsmiðla uppí 15. ára. Þær lýstu áhyggjur sínum af málinu og Inga gaf sér góðan tíma að spjalla við þær og útskýra hvað liggur að baki.
Skemmtileg heimsókn í okkar góða skóla: Síðuskóla, sjá myndir hér.