Leitin að grenndargralinu hefst mánudaginn 5. september.
Hér er á ferðinni spennandi ratleikur fyrir fróðleiksfúsa krakka
á unglingastigi. Er þetta fjórða árið sem nemendur í 8.-10. bekk leita að grenndargralinu. Sex skólar taka þátt að þessu
sinni en það eru Brekkuskóli, Glerárskóli, Giljaskóli, Lundarskóli, Oddeyrarskóli og Síðuskóli.
Verkefnin sem þátttakendur kljást við tengjast sögu heimabyggðar.
Þannig er reynt að auka áhuga og vitund þátttakenda á nánasta umhverfi í gegnum skemmtilegar og spennandi vettvangsferðir og
rannsóknarleiðangra. Öll vinna nemenda fer fram utan skólatíma og því er um frjálsa þátttöku að ræða.
Þátttakendur fá eina þraut til lausnar í viku hverri í 10 vikur.
Við lausn hverrar þrautar fá þeir bókstaf og er markmiðið að safna ákveðnum fjölda bókstafa sem að lokum mynda
lykilorð. Þegar krakkarnir hafa raðað saman bókstöfunum og myndað sjálft lykilorðið hafa þeir öðlast rétt til að hefja leit
að grenndargralinu.
Gralið er staðsett á Akureyri og fá krakkarnir vísbendingar sér til
aðstoðar við leitina. Sá eða þeir sem fyrstir finna gralið teljast sigurvegarar í Leitinni að grenndargralinu árið 2011. Fá þeir
grenndargralið til varðveislu í eitt ár.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Leitarinnarhttp://www.grenndargral.is/. og á facebook.
Umsjón með Leitinnihafa kennarar í þátttökuskólunum sex.
(Brynjar Karl Óttarsson umsjónarmaður Grenndargralsins)