Göngum í skólann var sett formlega
föstudaginn 9. september í Síðuskóla.
Við setninguna voru allir nemendur og starfsmenn kallaðir
saman í íþróttasal skólans þar sem töluðu Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla, Viðar
Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar sem setti átakið
formlega og Sindri Snær Konráðsson nemandi í 10 bekk sem talaði fyrir hönd nemenda. Að setningarathöfninni lokinni gengu allir nemendur skólans
ásamt starfsmönnum og góðum gestum um nágrennið með hvatningarspjöld sem bentu á ágæti þess að ganga í
skólann.
Á
alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er
5. október. Göngum í skólann verkefnið fer fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á
Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október.
Þeir sem að verkefninu standa
hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Landlæknisembættið,
Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Heimasíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is.