Felix Bergson heimsækir Síðuskóla

Í gærmorgun fengum við góðan gest í heimsókn, engan annan en Felix Bergsson. Hann las fyrir alla krakka í 1.-7. bekk upp úr nýju bókinni sinni "Leynifélag í lífsháska" og tók í lokin tvö lög, gamla góða "Hundalagið" og svo "Fiskinn minn". Krakkarnir hlustuðu af athygli á upplesturinn og Felix hætti auðvitað að lesa þegar spennan fór að magnast í sögunni. Svo var auðvitað rífandi stemning þegar nemendur og starfsmenn tóku lagið með Felix í lokinn. 

Sjá myndir hér