Nemendur tóku þátt í Lífshlaupinu, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, fyrstu vikurnar í febrúar. Fyrirkomulagið var með öðru sniði nú í ár í en venjulega en Síðuskóli var þátttakandi í tilraunaverkefni með ÍSÍ sem fólst í því að hreyfingin fór að mestu fram innan skólans á skólatíma. Margar skemmtilegar útfærslur urðu á þessum hreyfistundum og hér má sjá nokkrar myndir af nemendum í allskonar sprikli.
Starfsfólk Síðuskóla tók einnig þátt í Lífshlaupinu dagana 14.-28. febrúar, í flokki vinnustaða með 70-149 starfsmenn. Og starfsmenn tóku vel á því þessar vikur því liðið endaði í 12.sæti á landsvísu og var efst liða frá Akureyri í vinnustaðakeppninni. Vel gert og til hamingju öll, nemendur og starfsfólk, með góðan vilja til hreyfinga og útiveru. Áfram svona :)