Söngkeppni FÉLAK (Félagsmiðstöðvar Akureyrar) fór fram í Brekkuskóla fimmtudaginn 26. febrúar síðastliðinn. Þar stigu á stokk fimm fræknar stúlkur úr 10. bekk Síðuskóla, þær Nína, Arna, Nadia, Kolbrún og Vala og munu þær verða fulltrúar Undirheima á NorðurOrgi, norðlensk forkeppni Söngkeppni Samfés, sem haldin verður á Ólafsfirði þann 13. mars næst komandi. Öllum nemendum á unglingastigi stendur til boða að fara og fylgjast með keppninni á Ólafsfirði og ættu forráðamenn að hafa fengið póst varðandi það.
