Skólaslit Síðuskóla 2026

Síðuskóla var slitið þriðjudaginn 9. júní.

Dagurinn var fallegur og bauð nemendur velkomna í kærkomið sumarfrí. Fyrir hádegi mættu nemendur 1.-9. bekk á sal og áttu einnig stund saman inni í bekk með kennurunum sínum. 10. bekkur var svo útskrifaður frá Glerárkirkju kl. 15 en í ár kláruðu alls 53 nemendur grunnskólagöngu sína við Síðuskóla og fara nú á vit nýrra ævintýra. Við óskum þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum.
Svo kveðja alltaf einhverjir starfsmenn að vori, bæði eftir stutt og löng stopp við skólann. Í ár voru þær Bryndís, Erna, Marta, Sigrún og Svava kvaddar eftir áratuga starfsferil við skólann og þökkuð vel unnin störf og tryggð við skólann. Hér má sjá myndir frá öllum deginum.