1.bekkur fékk skemmtilega heimsókn frá elstu börnum Síðusels og Krógabóls nú í vikunni. Um var að ræða árlegan viðburð sem er hluti af samstarfi Síðuskóla og leikskólanna tveggja. Markmið samstarfsins er að efla tengsl og brúa bilið milli þessara tveggja skólastiga. Börnin áttu saman notalega söngstund þar sem skólarnir sungu fyrir hvern annan æfð atriði ásamt því að syngja öll saman tvö lög. Við þökkum Síðuseli og Krógabóli kærlega fyrir heimsóknina.
Hér má sjá myndir frá söngstundinni.