Upptakturinn fór fram í Hofi í gær þar sem flutt voru frumsaminn tónverk eftir sjö ungmenni úr grunnskólum bæjarins. Síðuskóla átti einn fulttrúa á þessum viðburði og erum við afar stolt af henni Ólöfu Birnu sem átti verkið "Árstíðirnar". Verkin voru flutt af atvinnu tónlistarfólki og höfðu ungmennin unnið að útsetningu og þróun verkanna undanfarnar vikur í samstarfi við þau.
Við óskum þeim öllu til hamingju með vel heppnaða tónleika, framtíðin er björt hjá tónlistarlífi Akureyrar.