Vel heppnaður útivistardagur í 10° stiga frosti

Vel heppnaður útivistardagur í Hlíðarfjalli í dag. Það var ansi napur í fjallinu en samt ekki hægt að kvarta undan veðri og færi til útivistar. Allir fundu sér eitthvað við að vera, margir prófuðu gönguskíði sem var i boði allan daginn undir stjórn Veroniku íþróttakennara. Svo var gott að fara aðeins inn á milli að ylja sér og fá sér nesti. Góður dagur að baki einsog sjá má á myndum.