Kæru nemendur og foreldrar
Mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar verður
námsmat afhent með viðtali við nemendur og foreldra. Viðtölin er skipulögð þannig að 10. janúar eru viðtöl hjá 1. -6. bekk en
kennt í 7. – 10. bekk. 11. janúar eru viðtöl í öllum bekkjardeildum skólans og ekki kennsla þann dag.
Nemendur fá tilkynningu um viðtal rafrænt frá umsjónarkennara og
ef sá tími hentar ekki þá vinsamlega hafið samband við umsjónarkennara eða ritara sem allra fyrst.
Ef foreldrar eða kennarar vilja ræða einhver mál án þess að nemandinn sé viðstaddur þá er einfalt að verða við
því.
Æskilegt er að vera búin að fara yfir leiðsagnarmatið sem unnið var í
skólabyrjun og á miðri önninni svo hægt sé að hafa þau til hliðsjónar í viðtölunum.
Meðan á viðtölum stendur verða faggreinakennarar, sérkennarar og
skólastjórnendur til viðtals í skólanum auk annars starfsfólks.
Foreldrar barna í 1. – 4. bekk eru beðnir að hafa samband ef þeir vilja nota
frístund fyrir hádegi viðtalsdagana. Síminn í frístund er 461 3473.
Foreldrar eru beðnir að athuga hvort börn þeirra eigi föt eða aðra muni í
óskilum í skólanum.