Í þessari viku fór 100 miða leikurinn af stað sem er árlegur viðburður í skólastarfinu. Leikurinn stendur yfir í tvær vikur og er markmiðið með honum að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglunum. Starfsmenn gefa 10 nemendum á dag sérstaka hrósmiða sem eru settir á spjald með reitum merktum frá 1 til 100. Búið er að velja vinningsröð á spjaldinu og kemur svo í ljós í lok leiks hvaða nemendur eru í vinningsröðinni. Leiknum lýkur föstudaginn 20. mars og sigurvegarar verða tilkynntir á söngsal fimmtudaginn 26. mars.
