3. bekkur leiðir áfram Svakalegu lestrarkeppnina í Síðuskóla

Staðan eftir tvær vikur í Síðuskóla í Svakalegu lestrarkeppninni 2026
Staðan eftir tvær vikur í Síðuskóla í Svakalegu lestrarkeppninni 2026

Eftir tvær vikur leiðir 3. bekkur áfram Svakalegu lestrarkeppnina innan Síðuskóla. Þau lesa samtals 555,5 mínútur að meðaltali á hvern nemanda í bekknum síðan keppnin hófst. Vel gert 3. bekkur!
5. bekkur vermir áfram annað sætið og hafa lesið 395,6 að meðaltali. Í þriðja sæti hafa orðið vendingar en 2. bekkur hefur stolið því af 6. bekk síðan í síðustu viku með lestur uppá 345,5 á hvern nemanda. 

Það getur allt gerst enda nóg eftir af keppninni, heil vika til að ná þessum lestrarormum á toppnum ef allir leggja sig fram í bekknum. Og saman ætlum við auðvitað að verða Svakalegasti lestrarskóli landsins.

Áfram Síðuskóli :)