5. bekkur í samstarfi við Listasafn Akureyrar

Í vetur hafa nemendur á miðstigi Síðuskóla og Lundarskóla komið í endurteknar heimsóknir í Listasafnið, fengið þar fræðslu og í framhaldinu unnið verkefni í tengslum við heimsóknirnar.

Afraksturinn má sjá á sérstakri sýningu nú stendur yfir í safnfræðslurými Listasafnsins, sem opið er öllum gestum safnsins, frítt fyrir 18 ára og yngri.

Sýningin er lokahnykkur í samstarfi verkefnastjóra fræðslu og miðlunar í Listasafninu á Akureyri og myndmenntakennara Síðuskóla og Lundarskóla.

Sjá myndir hér.