Hin árlega flokkunarkeppni fór fram í morgun. Þá keppa árgangarnir á hverju stigi sín á milli um að flokka sem réttast og á sem styðstum tíma. Þessi keppni hefur verið haldin í fjölmörg ár og er liður í því að vera Grænfánaskóli en Síðuskóli fékk 10. grænfánann í vor. Gaman að segja frá því að þessi keppni er heimatílbúin í Síðuskóla og hefur verið skemmtileg viðbót í fræðslu um rétta flokkun á öllu því daglega rusli í umhverfinu sem við berum öll ábyrgð á að komist á réttan leiðarenda. Það er alltaf gaman og mikil stemning þegar keppnin fer fram einsog sjá má á þessum myndum. Úrslitin verða tilkynnt á næsta söngsal.