Áskorun drengja í 10. bekk

10. bekkur skoraði á starfsfólk skólans að keppa við sig í þremur keppnisgreinum nú undir skólalok. Það var komið að drengjunum að keppa við karlana úr starfsliðinu í bandý og fótbolta. Ansi hart var barist en drengirnir urðu að lúta í lægra haldi fyrir ansi öflugu liði starfsmanna í báðum keppnum. Karlarnir gersigruðu bandýið en það mátti reyndar tæpara standa með boltann, þar kom Óli nokkur sterkur inn með eina mark leiksins. Keppnirnar voru báðar afar skemmtilegar og komu áhorfendur að sjálfsögðu sterkir inn þar sem unglingarnir studdu sína drengi dyggilega en yngri bekkir stóðu við bakið á starfsmönnum og hjálpuðu öruggulega til með sigrana. Á myndum má sjá gríða góða stemningu í íþróttahúsinu enda afar ánægjulegt að koma saman og leika sér svona undir lok dags.