Áskorun stúlkna í 10. bekk

10. bekkur skoraði á starfsfólk skólans að keppa við sig í þremur keppnisgreinum nú undir skólalok. Stúlkurnar riðu á vaðið í dag og kepptu við valið lið kvenkennara við skólann í blaki og fótbolta. Báðar keppnir voru æsispennandi og allt lagt í sölurnar. Niðurstaðan var sú að kennarar sigruðu blakleikinn, enda landsþekktar kempur úr öldungablakinu í liði kennara, en 10. bekkjar stúlkur áttu stórsigur í fótboltanum þar sem hraði og snerpa (annars liðsins) skipti sköpum. Nemendur mættu vel stemmdir til leiks og hvöttu bæði lið áfram. Sérstaka athygli vakti galvaskt stuðningslið drengja í 10. bekk sem mætti prúðbúið og hvatti sínar bekkjarsystur dyggilega. Í næstu viku munu svo drengirnir keppa við karlkyns starfsmenn í fótbolta og bandý og ætla má að sú keppni verði ekki síður skemmtileg. Hér má sjá fleiri myndir frá keppni dagsins.