Bókaverðlaun barnanna 2026

Fram til 16. mars gafst nemendum í 1.-7. bekk kost á að kjósa uppáhalds barnabækur sem komu nýjar út árið 2025. Kosningin fer fram á almennings- og skólabókasöfnum um allt land og geta þau valið eina til þrjár barna og/eða unglingabækur á íslensku sem þeim finnast skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar af hvaða ástæðu sem er. 
 
Amtsbókasafnið á Akureyri hefur haldið utan um kosninguna fyrir grunnskólana hér í bænum, komið kjörseðlunum til skila og  jafnframt dregið út einn heppinn í hverjum skóla sem hlýtur bók að gjöf. Í ár var Selma Sif í 5. sæti sú heppna og fékk bókina Þitt eigið ævintýri eftir Ævar Þór Benediktsson að gjöf.
 
Í valinu í Síðuskóla var Skólastjórinn vinsælust, þar á eftir var Hundmann og svo Undrarútan.