Hópamyndun á leiksvæðum að kvöldlagi

Frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og landlæknisembættinu:

Við höfum fengið ábendingu um að hópamyndum unglinga á leiksvæðum að kvöldlagi hefur verið að aukast. Ástæðan er líklega gott veður og þær jákvæðu fréttir sem hafa verið að berast af þróun mála hjá okkur. Það er aftur á móti mjög mikilvægt að við höldum fókus og sofnum alls ekki á verðinum.

Foreldrum er bent á mikilvægi þess að halda áfram að fara eftir fyrirmælum og sporna gegn allri hópamyndum.