Við fögnuðum degi íslenskrar tungu þriðjudaginn 17. nóvember þar sem hinn eiginlegi dagur, 16. nóvember, bar uppá starfsdegi skólans. Það er orðinn árlegur siður að setja formlega upplestrarkeppnir skólans þennan dag þar sem við tekur æfingar í upplestri og rækt við móðurmálið okkar. Dagurinn er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar sem fæddist árið 1807 á Hrauni í Öxnadal. Á þessum degi ár hvert minnum við okkur á mikilvægi þess að varðveita og efla tungumálið okkar. Jónas var skáld og náttúrufræðingur sem lagði sérstaka rækt við nýyrði á sínum tíma, orð og hugtök sem við búum að í dag.
Litla upplestrarkeppnin er haldin fyrir 4. bekk og Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, fyrir 7. bekk. Nú tekur við tímabil æfinga í upplestri og framsögn hjá þeim. Haldnar verða uppskeruhátíðir í febrúar ásamt því að velja fulltrúa Síðuskóla fyrir Upphátt sem taka síðan þátt í lokahátíð grunnskólanna á Akureyri í Hofi á vordögum.
Einnig er efnt til keppni um besta veggspjaldið fyrir Upphátt keppnina og taka allir nemendur 7. bekkjar þátt í því. Skilafrestur fyrir veggspjaldið er 4. desember næstkomandi.