Útivistardagur í Hlíðarfjalli 2018

Fimmtudaginn 1. febrúar er fyrirhugaður útivistardagur í Hlíðarfjalli. Þá fara allir nemendur skólans með rútu í Hliðarfjall að morgni og koma til baka kringum hádegi. Þeir sem eru í 6. bekk og eldri mega vera lengur með skriflegu leyfi foreldra.  Spáð er köldu veðri þennan dag og afar mikilvægt að vera vel klæddur. Muna eftir góðu nesti sem auðvelt er að neyta utandyra.  Skóladegi  lýkur kl.  12:30 og nemendur sem skráðir eru í frístund fara þangað en aðrir fara heim.  Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu. • Hjálmaskylda er þennan dag og engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.

Fimmtudaginn 1. febrúar er fyrirhugaður útivistardagur í Hlíðarfjalli. Þá fara allir nemendur skólans með rútu í Hliðarfjall að morgni og koma til baka kringum hádegi. Þeir sem eru í 6. bekk og eldri mega vera lengur með skriflegu leyfi foreldra. 


Spáð er köldu veðri þennan dag og afar mikilvægt að vera vel klæddur. Muna eftir góðu nesti sem auðvelt er að neyta utandyra. 


Skóladegi  lýkur kl.  12:30 og nemendur sem skráðir eru í frístund fara þangað en aðrir fara heim. 

Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu.


 Hjálmaskylda er þennan dag og engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.


Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag.

Mæting í skólann er kl. 8:00. Farið verður upp í Hlíðarfjall frá skólanum og fyrsta rúta leggur af stað ca. 8:15.

Nemendur velja hvort þeir fara á skíði, bretti, gönguskíði, sleða, snjóþotu eða í göngutúr.

Fyrir 3. – 10.  bekk er í boði að fá lánaðan búnað í fjallinu og eru íþróttakennarar búnir að mæla stærðir og skrá óskir nemenda. 

Yngstu nemendurnir ( 1. – 2. bekkur ) mega koma með sinn búnað ef þeir eru vanir.

Gönguskíðabúnaður er í boði fyrir alla nemendur.

Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu!

Nemendur þurfa að koma með skriflegt leyfi að heiman 

ef þeir ætla að vera lengur en til 12:30 uppi í fjalli ( í boði fyrir 6. – 10. bekk).