Góð gjöf

Skólasafni Síðuskóla hefur borist afar góð gjöf frá Sögufélagi. Í tilefni af aldarafmæli kosningarréttar íslenskra kvenna gaf Sögufélag út bókina Konur sem kjósa – aldarsaga árið 2020. Bókin er tímamótaverk um mannréttindi á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Bókin á ekki síst erindi við ungt fólk og því ákvað Sögufélag að gefa öllum grunnskólabókasöfnum eintak af bókinni. Með því móti er öllum nemendum og kennurum tryggð aðgengi að þessu grundvallarriti um líf kvenna í gegnum alla 20. öldina. Einnig gaf Sögufélag „Hinir útvöldu. Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918“ eftir Gunnar Þór Bjarnason og „Fyrstu forsetarnir. Embætti þjóðhöfðingja Íslands á 20. öld“ eftir Guðna Th. Jóhannesson. Báðar bækur nýtast vel í kennslu og fylgja með þessari bókagjöf.

Fyrir hönd skólasafns Síðuskóla, nemenda og kennara í Síðuskóla þakkar bókasafnskennari kærlega fyrir afar góða gjöf.