Hæfileikakeppni Akureyrar er árlegur viðburður fyrir börn í 5. - 10. bekk. Um að ræða fjölbreytta keppni þar sem börn og unglingar á Akureyri geta komið sér á framfæri og unnið með styrkleika sína og hæfileika. Dæmi um atriði sem gætu skráð sig til leiks geta verið á sviði sönglistar, leiklistar, danslistar, töfrabragða og hljóðlistar svo eitthvað sé nefnt. Atriðin geta verið einstaklingsatriði, paraatriði eða hópatriði.
Hægt að skrá sig til leiks til 14. apríl. Skráningarhlekkur HÉR!
Frekari upplýsingar veita hulda.osk.jonsdottir@akureyri.is
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 22. apríl
Tímasetning: 16.00-18.00
Staðsetning: Hof
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir



