Minni á verklagsreglur um óveður og eða ófærð

Kæru foreldrar og aðrir aðstandendur Þar sem úti er alltaf að snjóa og sum staðar hefur ófærð skapast á götum úti viljum við minna á verklagsreglur Fræðslusviðs í sambandi við óveður og /ófærð. Sjá hér að neðan:

Kæru foreldrar og aðrir aðstandendur

Þar sem úti er alltaf að snjóa og sum staðar hefur ófærð skapast á götum úti viljum við minna á verklagsreglur Fræðslusviðs í sambandi við óveður og /ófærð. Sjá hér að neðan:

Óveður og / eða ófærð
Verklagsreglur

Tilkynning lögreglu
Ef veður eða færð er með þeim hætti að morgni að lögregla mælir með því að skólahald verði fellt niður, er brugðist við því. Þá fellur niður allt formlegt skólahald í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar, samkvæmt tilmælum lögreglu.

Sviðsstjóri fræðslusviðs er í slíkum tilvikum í sambandi við lögreglu að morgni og kemur tilkynningu í RÚV og Bylgjuna um að kennsla sé felld niður í leik- og grunnskólum á Akureyri. Er þá gert ráð fyrir því að fyrsta tilkynning sé birt kl. 7.00 að morgni.

SMS sending
Sviðsstjóri fræðslusviðs sendir þá sms til leik- og grunnskólastjórnenda með tilkynningu um að skólahald falli niður. Skólastjórnendur sendi þá þegar á sína starfsmenn upplýsingar um stöðu mála.

Ábyrgð foreldra
Almennt þegar vond vetrarveður ganga yfir verða foreldrar ávallt að meta sjálfir hvort óhætt sé að senda barn í skólann ef ekki hefur komið tilkynning frá lögreglu um að skólahald skuli falla niður. Í hverjum skóla er alltaf einhver hluti starfsmanna mættur til að taka á móti þeim börnum sem kunna að mæta, ef upplýsingar um lokun að tilmælum lögreglu hafa ekki náð til foreldra að morgni.
Sé barn heima vegna veðurs eða ófærðar þarf að tilkynna það í sms/síma eða með tölvupósti.

Ábyrgð skólayfirvalda
Af öryggisástæðum er hver skóli ábyrgur fyrir því að stjórnandi/starfsmaður sé kominn í skólann að morgni fyrir skólabyrjun ef vera skyldi að einhverjir mættu. Þeir eru þá upplýstir um að skólahald falli niður og nemendur/leikskólabörn skuli vera heima. Tryggja skal öryggi ungra grunnskólabarna, að þau séu ekki send ein heim aftur heldur tryggt að ábyrgðaraðili sæki.
Af öryggisástæðum verða einhverjir að vera í húsi til kl. 10:00.


Akureyri, 9. janúar 2018

Sviðsstjóri fræðslusviðs